miðvikudagur, febrúar 16, 2011

6 dagar af vatnsleysi

Dagur 1: Þú vaknar um morguninn og ætlar að bursta tennurnar. Skrúfar frá krananum en ekkert kemur út. Jæja... það hefur nú verið vatnslaust áður, yfirleitt stendur það bara yfir í nokkra tíma. Best að fara í vinnuna, þótt maður verði að sleppa morgunsturtunni.
Þú kemur heim úr vinnunni og það er enn ekkert vatn! Jæja... best að fara bara að sofa, það verður komið aftur á í fyrramálið.

Dagur 2: Þú vaknar, röltir inn á baðherbergi, skrúfar frá krananum og þegar ekkert gerist manstu allt í einu að það var vatnslaust í gær. Fjandans... en sem betur fer eru til nokkrir lítrar af vatni á brúsa sem einhver var svo klár að fylla á... þannig þú hitar það og ferð í afríska sturtu (úr fötu). Núna er ekkert vatn eftir! Þú drífur þig samt í vinnuna á meðan það dagar smátt og smátt upp fyrir þér að kannski er vatnsleysið komið til að vera. Þú bölvar leigusalanum fyrir að hafa logið að þér að það verði aldrei vatnslaust í þessum húsnæði því það séu 4 risastórir vatnsgeymar fyrir bygginguna neðanjarðar sem sjá öllum fyrir vatni. Þegar þú kemur heim úr vinnunni hefur fólkið sem þú leigir með keypt 80 lítra af vatni og fyllt öll ílát í húsinu, gleður þig óumræðilega.

Dagur 3: Þú ert hættur að reyna að sturta niður í klósettinu og skrúfa frá krananum af gömlum vana... vatnsleysið er orðið að vana! Þú ert ekki lengur bara reiður við leigusalann, þú ert brjálaður! Svo kemur í ljós að allt hverfið hefur verið án vatns í 2 vikur og eina ástæðan fyrir því að þú hefur haft vatn er vegna neðanjarðar vatnsgeymanna... en þeir endast ekki endalaust. Þannig þú brosir fallega til leigusalans í staðinn fyrir að garga á hann.

Dagur 4: 80 lítrarnir sem voru keyptir í fyrradag eru búnir. Þú hleypur um allt til að reyna að finna vatnsmanninn því síminn hans virkar ekki og finnur hann loksins. Vatnið hefur hækkað í verði því vatnssalinn þurfti að fara á hinn enda borgarinnar til að finna vatn.

Dagur 5: Þú vaknar klukkan 6 um morgun við vatnsgutl! Vatnið kemur aftur á í 10 mínútur sem þýðir að þú getur safnað 50 lítrum af brúnu vatni og sturtað niður í klósettinu (sleppum öllum lýsingum á ástandinu á klósettinu eftir 5 daga af því að geta ekki sturtað niður). Þér tekst líka að vaska upp, sem er gott því ALLIR diskar og pottar í húsinu eru óhreinir! Vei!

Dagur 6: Það rignir eins og hellt sé úr fötu! Rigningatímabilið á ekki að byrja fyrr en í lok mars og hvað er þetta vatn að gera úti á götu í pollum en ekki í krananum mínum!

Dagur 7: Vatnið er komið á aftur! En best að kaupa sér 100 lítra vatnsgeymi, bara til öryggis...

4 comments:

Ásta Lovísa sagði...

Shiiiiit ekki gaman, gott að geta litið á vatn úr krana sem sjálfsagðan hlut!

Sigrún sagði...

Ó guð!! Ég er hætt að vera pirruð á Íslandi..

Eyrun S sagði...

úff tilhugsunin um ástandið á klósettinu hræðir mig:/

Nafnlaus sagði...

snilldarblogg ;) - Silla