
Það virkaði svo auðvelt að kaupa hana, ég hafði áður séð kallana fyrir utan Westgate verslunarmiðstöðina sem voru með fullt af kanínum í boxi (og það er líka hægt að fá hvolpa og kettlinga) og bráðnaði alveg þegar ég sá þá... í gær var ég að keyra þar með vini mínum og hann sagði að ég ætti endilega að skella mér á eina kanínu. En kallarnir hópuðust allir utan um bílinn því það er mikil gróðavon í muhindi (indverja) og mzungu (hvítingja) í Land Rover þannig við gátum ekki keyrt áfram án þess að klessa á þá... og svo kom löggan auðvitað labbandi og tjáði okkur að við værum að stoppa umferðina og vildi sekta okkur. Ef maður er sektaður í Kenya þá þarf maður að mæta fyrir dóm og borga 5000 shillinga sekt (7.500 ISK). En fæstir gera það því löggan býður manni auðvitað að semja við sig (lesist sem mútur). Vinur minn vinnur fyrir Sameinuðu Þjóðirnar þannig við sluppum billega með 1000 shillinga mútur, en vorum hálfpirruð yfir þessu engu að síður... en svona er lífið, þetta er Afríka!
4 comments:
Er þetta fyrsta gæludýrið þitt?
Nei ég átti gulan páfagauk... fyrir það langaði mig svo í gæludýr þegar ég var 5 ára að ég fann mér ánamaðk og bjó til leikvöll fyrir hann (box með vatni og stein). En næsta dag þá var hann þornaður upp á steininum...
HAHAHAHA....ég meina æjæj:/
Fáránlega sæt kanína!! :D
Sendu inn athugasemd