Þetta er húsið mitt... það sem er lengst í burtu til hægri, með hvítum bíl fyrir framan. Við höfum garð (sem er reyndar bara með mold því einhver varð þreyttur á að þurfa alltaf að slá grasið), fjórum svefnherbergjum, fjórum baðherbergjum og stórri stofu og eldhúsi. Þegar ég kom hingað fyrst þá voru rúmin einu húsgögnin í húsinu en núna höfum við sófasett, ísskáp, þvottavél og meira að segja þráðlaust internet (sem virkar þegar því hentar).

Þetta er hliðið að hverfinu... það eru ca. 50 hús innan girðingarinnar, og það kemst enginn inn nema að fara í gegnum þetta hlið sem hefur minnst þrjá verði. Allsstaðar annarsstaðar er rafmagnsgirðing og gaddavír.

Hverfið sem ég bý í er mjög nýtt, og það hefur ekki verið mikið gert fyrir allt utan girðingarinnar... vegurinn heim að húsinu er argasti sveitavegur, rykugur þegar það er sól og drullupyttur þegar það rignir. Það rignir sem betur fer sjaldan! Þetta er svo kaupmaðurinn á horninu, þar sem ég kaupi grænmeti.

Stundum heyri ég brjálað jarm fyrir utan gluggann. Ég komst svo að því þegar ég labbaði í vinnuna að það eru tugir kinda á beit fyrir utan húsið, í miðju iðnaðarhverfi! Ég hef ekki grænan grun um hvaðan þær koma.

Þetta er Peter frá Botswana sem ég bý og vinn með, með Kagasi sem er í kenýsku landsstjórninni. Þetta er skrifstofan okkar eins og stendur, en planið er að fá nýja skrifstofu núna í október frá ríkisstjórninni (já, við erum mikilvæg!)

0 comments:
Sendu inn athugasemd