föstudagur, september 17, 2010

Ég held að það sé kominn tími til að útskýra hvað ég er að gera á mínu endalausa flakki. Fólk skilur ekki hvað ég var að gera í Nýja Sjálandi, afhverju ég flutti til Kenya og þaðan af síður afhverju ég skrapp til Indlands í tvo mánuði. Þannig ég ætla að gera smá tilraun til að útskýra málið.

Í Nýja Sjálandi vann ég í landsstjórn AIESEC í Nýja Sjálandi, og sá um mannauðstjórnunarmál og markaðssetningu. Það sem AIESEC gerir er að skipuleggja starfaskipti fyrir háskólanema, þannig ég var að markaðssetja starfaskiptaprógrammið fyrir háskólanema og fá sem flesta til að sækja um að fara í starfaskipti til annarra landa, plús að sem mannauðsstjóri þá sé ég um að velja og þjálfa fólkið í stjórnunarstöður innan AIESEC.

Eitt sem AIESEC gerir á hverju ári er að halda risastóra ráðstefnu einhversstaðar í heiminum. Þessi ráðstefna heitir AIESEC International Congress (eða bara IC) þar sem allar landsstjórnir AIESEC hittast og ræða málin og ákveða hvernig við getum bætt stjórnunar- og starfaskiptaprógrammið. Þess vegna fór ég til Malasíu í fyrra sem þátttakandi á IC 2009, því þá var ég í landsstjórninni í Nýja Sjálandi.

Í Kenya var ég ráðin til að vera í ráðstefnustjórninni sem skipuleggur IC 2011, því Kenya mun halda ráðstefnuna það ár. Ég er semsagt hluti af 8 manna stjórn sem mun eyða næsta ári í að skipuleggja IC.

Ástæðan fyrir því að ég fór til Indlands er að IC 2010 var haldið þar, og 8 manna ráðstefnustjórn ræður ekki við að halda 600 manna ráðstefnu ein og sér. Þess vegna ræður stjórnin alltaf um það bil 50 manns í 2 mánuði til að vinna undir stjórninni og halda ráðstefnuna. Ég var ein af þessum 50 manns sem vann við IC 2010, og ástæðan fyrir að ég fór var svo ég gæti lært hitt og þetta um viðburðastjórnun... og á næsta ári verð ég yfir þessum 50 manns á ráðstefnunni í Kenya!

Þetta er auðvitað einstaklega þurr útgáfa af því sem ég er að gera... ég lofa að allar útgáfur eftir þetta verða skemmtilegar!

4 comments:

Nafnlaus sagði...

þetta hljómar allt mjög merkilegt, og ekki verra hvað þú færð að ferðast mikið :D -silla

Ásta Lovísa sagði...

Samt frekar leiðinleg bloggfærsla...hehe

Eyrun S sagði...

HAHA ásta segir það sem allir hugsa! hehe gríín:)
en þörf útskýring engu að sýður, fínt að hafa svona útskýringu sem þú getur núna bara sent fólki linkinn á ef það spyr;)

Eyrun S sagði...

skrifaði ég síður með ý!! ómæ :(