Þetta ár er allt annað mál. Í maí fór ég að fá þessa líka sterku tilfinningu fyrir því að jólin væru að koma... það var að kólna í Nýja Sjálandi og þótt ég viti vel að jólin séu í desember, þá fannst mér samt að jólin væru rétt ókomin!
Jólin komu auðvitað aldrei og ég losnaði við þessa "jólin eru að koma" tilfinningu þegar ég kom til Kenya þar sem er heitt allt árið. Í staðinn er komin þessi líka gífurlega tilhlökkun til jólanna... enda er ég komin með hálfgerð fráhvarfseinkenni því mér finnst ég hafa misst af einum jólum (nýsjálensk jól eru engin jól þótt við Kristjana hefðum gert góða tilraun til að halda upp á íslenskt aðfangadagskvöld).
Venjulega myndi ég gera grín að fólki sem hlakkar til jólanna í september, en ég hef núna vaknað upp tvo daga í röð við þann draum að það séu jól og ég sé heima... kannski af því ég er um það bil að kaupa mér miða HEIM um jólin! Eins skemmtilegt og það er að skoða heiminn þá er grautfúlt að vera að heiman um jólin, og ég ætla svo sannarlega ekki að missa af öðrum íslenskum jólum! Síðdegis laugardaginn 11. desember ætla ég að vera komin heim eftir meira en eitt og hálft ár í burtu og ég get ekki beðið!
3 comments:
Jeijjj ég get heldur ekki beðið :) Það verður snilld að fá þig heim!
Hey eigum við að taka einn badmintonleik á meðan þú sleikir klakann?
Alveg kominn tími á klakaheimsókn kona góð :)
Sendu inn athugasemd