Ég átti mjög undarlegt augnablik af heimþrá þessa helgi. Sagan er sú að á meðan við erum að skipuleggja 600 manna ráðstefnu, þá kemur í ljós að það er ekki nóg af herbergjum í þeim tveimur hótelum sem við eigum bókuð núna. Þannig við endum á því að bóka eitt auka hótel, Taj Banjara, sem er 500 metra í burtu. Það hótel stendur við vatn, og skólpi er veitt út í það... Eins og þú getur ímyndað þér, þá lyktar það einstaklega dásamlega. Við grínumst alltaf með það að flytja þá þátttakendur sem eru pirrandi við okkur yfir í skítalyktarhótelið... en ég hafði aldrei komið þangað, bara heyrt sögur af skítalyktinni sem var víst óbærileg.
Um helgina fór ég í partý, og þar sem það var dimmt á leiðinni þangað (og ég ansi áttavillt) þá vissi ég ekkert hvar ég var í borginni. Við vorum uppi á 8. hæð og ég ákveð að kíkja út á svalir, þar sem ég finn netta skítafýlu... og allt í einu finnst mér ég vera komin heim aftur, þar sem er prumpulykt af vatninu! Þegar ég fer að horfa á kringum mig þá blasir við mér stór bygging, Taj Banjara... ég er nokkuð viss að ég er sú eina sem fær jákvæðar minningar af þessari skólplykt. Kannski þeir ættu að markaðssetja sig fyrir Íslendinga með heimþrá?
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
6 comments:
er alltaf prumpulykt heima hjá þér eða?
Nákvæmlega...hef ekki orðið vör við skítalykt á Íslandi, hlýtur að vera eitthvað tengt heimilinu þínu...
Gott blogg Freyja! Allir Íslendingar eru í afneitun með að kranavatnið okkar lyktar eins og úldin egg enda verið sagt frá blautu barnsbeini að það sé hreinasta og besta vatn í heimi (sem er algjört kjaftæði!)
Það er reyndar fínt á Akureyri þar sem að heita vatnið er ekki borað upp, heldur hitað.
Haha þessar tvær hérna fyrir ofan eru allavega í feitri afneitun. En íslenskt vatn er mest best og ég sakna brennisteinslyktarinnar!
vatnið í rvk er líka hitað upp væni.
Ég myndi nú ekki ganga svo langt og segja að það væri skólplykt af vatninu á Íslandi!
Sendu inn athugasemd