Það er ýmislegt gott við að vera hvítur í Afríku. Öllum finnst maður merkilegur, allir eru vingjarnlegir við mann og maður fær jafnvel betri þjónustu en aðrir! Ég fæ ýmsa sjensa sem svarta fólkið fær ekki, stundum meira að segja einum of...
Í gær fór ég að sækja um visað mitt til Indlands. Ég hafði farið í indverska sendiráðið fyrir helgi, en var sagt að koma aftur eftir nokkra daga því þeir vildu rannsaka sögu mína aðeins betur... maðurinn sem afgreiddi mig var voða kammó samt og spjallaði mikið við mig og sagðist óska að hann væri nú orðinn 30 ára á ný... Eric var með mér og var vel pirraður, því maðurinn hafði ekki sagt orð við hann þegar hann afgreiddi hann og þegar hann settist niður og ætlaði að bíða eftir mér þá var honum hent út.
Ég fór semsagt aftur í sendiráðið í gær og það var ansi löng röð sem beið eftir afgreiðslu. Þannig ég sest niður aftast í röðinni og bíð í 30 mínútur... og röðin haggast varla. Þá kemur maðurinn frá því fyrir helgi fram á afgreiðsluborðið og bendir mér á að koma til hans fram fyrir alla röðina... og hann spjallar smá við mig um Indland og afgreiðir umsóknina mína! Ég hafði séð fram á að vera þarna í marga tíma og þegar ég labbaði út, þá þorði ég ekki fyrir mitt litla líf að líta framan í nokkra manneskju... en ég fann mörg svört augu brenna á mér þegar ég skaust út um hurðina! Ég er að spá í að segja Eric ekki frá þessu... hann var nógu reiður yfir því að maðurinn skyldi vera vingjarnlegur við mig, hvað þá að mzungu (hvíta manneskjan) fái flýtimeðferð...
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
þú ert ss strax farin að ganga í lendarskýlunni einni saman...Hvítur hvað!?! :)
Það er meira fútt í Íslenska blogginu þínu Freyja! Er það politicaly incorrect hafa hvítamanns söguna á enska blogginu?
En þetta er snilld, þarf að fara til Afríku og lifa eins og kóngur :D
Ja madur tharf ad passa hvad madur segir a ensku... islenska bloggid mitt verdur alltaf uppahalds barnid mitt, hitt er bara auka...
Hehe ég lenti einmitt í því sama þegar ég var í Botswana að endurnýja Visað mitt. En maður veit ekki alveg hvernig manni á að líða með þetta... Svona einhver óþæginda tilfinning þar sem maður er ekkert að fara fram á svona "framkomu".
Ég talaði við Peter um daginn á Skype og Ísabella fékk að vera með. Honum fannst voða gaman að sjá liltu prnsessuna mína :)
Bið að heilsa fólkinu mínu. Ég öfunda þig ekkert smá að vera með þeim hehe :)
Kv. Eyrún
Sendu inn athugasemd