Ótrúlegt en satt þá kann ég mjög vel við mig hérna! Allir eru mjög vinalegir og til í að hjálpa manni, ef við förum úr matatu (hvíta rúgbrauðið: almenningssamgöngur) á dimmri götu þá stoppa allavega 5 bílar til að spyrja hvort við séum öruggar, og í gær á leiðinni í vinnuna þá var ég stoppuð af konu sem gaf mér risa faðmlag... ég hrökk í kút og hélt að hún ætlaði að stela einhverju af mér, en henni fannst þessi hvíta manneskja bara svona merkileg!
Ég vann lítinn persónulegan sigur í dag.... ég kom mér ein í vinnuna! Ég fer yfirleitt með Raquel, hún býr með mér og vinnur í landsstjórninni fyrir AIESEC Kenya. En í morgun þá svaf hún svo lengi að ég nennti ekki að bíða eftir henni og ákvað að það væri kominn tími fyrir ungann að fljúga úr hreiðrinu. Þannig ég rölti 10 mínútur út á matatu stöðina, tók matatu í bæinn og labbaði svo í hálftíma í gegnum miðbæ Nairobi til að komast á skrifstofuna. Þetta hljómar kannski ekki svo erfitt, en fyrir áttavillta Freyju sem þarf að líta út eins og hún viti hvert hún er að fara þótt hún sé snarvillt, þá er þetta erfiðara en það hljómar! Þannig ég er mjög stolt af sjálfri mér í dag.
Í Nairobi eru töluverðar líkur á að vera rændur. Hljómar illa, ekki satt? Það fyndna er að það er ekki svo hrikalegt. Það eru allir svo vinalegir hérna, að meira að segja þeir sem ræna mann eru hressir og glaðir... vinkona mín var í matatu sem var rænt og keyrður út fyrir borgina. Þar tóku þeir seðla og síma, en létu alla fá simkortin aftur svo símanúmerin væru ekki týnd og klink sömuleiðis, svo fólkið kæmist leiðar sinnar. Svo keyrðu ræningjarnir fólkið aftur í bæinn!
Klukkan er orðin 23:10 og kvöldmaturinn ekki ennþá tilbúinn... íslensk þolinmæði er bráðum á þrotum!
2 comments:
vá það er afrek! þú ert náttla áttavilltasta manneskja sem ég þekki :)
Mér finnst sagan um vingjarnlegu ræningjana best haha :D
Sendu inn athugasemd