- Það býr froskur í baðherberginu okkar. Ég tók ekki eftir honum í morgun, en hann var greinilega rétt við lappirnar á mér í sturtunni því ég tók rækilega eftir honum þegar hann tók sig til og stökk í burtu, með tilheyrandi áfalli fyrir mig! En ég hefndi mín með því að missa linsuboxið á gólfið, og þá brá froskinum.
- Það á enginn þvottavélar hér. En það er hægt að fá manneskju til að koma og þvo þvott, fyrir 300 kall.
- Ég hef ekki fengið eitt einasta moskítóbit... samt svaf ég ekki undir moskítóneti í nótt!
- Húsið sem ég bý í hefur ekkert heimilisfang. Bara leiðbeiningar um hvernig á að komast þangað.
- Franskar eru algengasti hádegismaturinn hér. Ég er ekki hrifin af því!
- Kenyabúar virðast ekki vita af eins metra friðhelgi hverrar manneskju... það er ekkert eðlilegra en að hvíla höndina á öxl næsta manns ef það hentar, þótt maður þekki hann ekkert.
- Ég er á leiðinni til Indlands eftir 3 vikur. En til þess að mega yfirgefa Kenya þarf ég að fá Yellow Fever bólusetningu... þannig ég er á leiðinni í afríska bólusetningu á mánudaginn.
- Afrískur félagi minn var að lýsa hitanum á Indlandi fyrir annarri manneskju... hann sagði að þegar hann var í Indlandi þá hefði hann sólbrunnið. Maðurinn er kolsvartur... ég fékk nett hláturskast sem ég reyndi að kæfa þegar þeim fannst þetta ekki jafnfyndið og mér...
miðvikudagur, júní 30, 2010
Afríka
Fyrsti dagurinn minn í Afríku:
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Jeij hlakka til að heyra meira um Kenía :)
Hljómar vel...keep up the good blog:)
Já einmitt þetta með heimilisfangið, farðu inn á Google Earth og finndu staðsetninguna á húsinu svo við finnum það þegar við komum í heimsókn. Adda gefur þér smáheilræði fyrir Indlandsferðina og hún er svona: Bannað að borða kjöt, ekki drekka neitt nema að það sé í lokuðum umbúðum og ekki borða neitt af götusölum, ekki borða vatnsmelónur (þeir sprauta vatni inn í þær til að stækka þær). Ekkert hrátt grænmeti heldur. Þetta eru aðalatriðin segir hún. Hún var þarna í 3 mánuði í vetur. Hún biður að heilsa.
Kveðja
mamma
Sendu inn athugasemd